Ekki gott!!
Við vestmanneyingar erum 2. flokks fólk, það held ég að allir sem búa hérna eru löngu farnir að sjá. Það er alveg merkilegt að það er búið að vera berjast fyrir lægri fargjöldum í Herjólf í mörg ár en þá er þetta bara hækkað. Þetta er náttúrulega bara til skammar. Svo annað, en það er nú reyndar bærinn sjálfur, það á að hækka hafnargjöld hérna í eyjum samt erum við fyrir hækkun með dýrustu höfn á landinu. Já það er dýrt að vera vestmanneyjingur. En málið með þessar samgöngur er það að það verður að koma annað skip sem fyrst og byrja á göngunum, þetta er ekki flókið. Það er alveg kominn tími til að við fáum smá bita af kökunni.

