Trillukall

Hafþór Halldórsson, athafnamaður og trillukall.

sunnudagur, janúar 08, 2006

Gleðilegt ár

Já gleðilegt ár og þakka liðið,er alveg að missa áhugan á þessu bloggdóti.Ætla nú samt að reyna að fara að taka mig á í þessu og fara koma með eitthvað skemmtilegt.En ég kíkti aðeins á ballið á föstudaginn og var bara fín stemning en missti reyndar af Herberti.En núna er ég bara kominn í bæinn,kom í gær með dallinum og skellti mér bara á king kong sem var bara alveg ágæt,en ég ef henni nú bara 2 af 4 stjörnum.Svo er bara að skella sér í kolaportið á eftir og auðvitað hina einu sönnu EUROPRIS.En þangað hef ég nú bara ekki komið í örugglega 2 eða 3 vikur.Já svo er bara að fara að leita sér að plássi,en það getur verið að maður fari bara á Glófaxan aftur það eru nú bara orðnar fínar tekjur þar,og skemmir það að hafa Bedda þarna uppi en hann er bara flottur.OKEI BÆ.

3 Comments:

At 2:03 PM, Anonymous said...

Þú mátt aldrei hætta að blogga. Punktur

 
At 5:36 PM, Nonninn said...

Nei, ekki hætta að blogga kallinn minn. Gleðilegt ár og sjáumst agalega hressir á því nýja !

 
At 8:53 AM, Kjartan Vídó said...

Hann Haffi þarf nú fyrst að koma með reglulegt blogg til þess að maður fari að sakna trillubloggsins hans.
Það hefur ekki komið kúkur frá honum í langan tíma og þegar málin eru þannig þá er skítalykt af málinu.

 

Post a Comment

<< Home