Trillukall

Hafþór Halldórsson, athafnamaður og trillukall.

föstudagur, desember 23, 2005

Þorláksmessa


Þá er nú bara kominn þorláksmessa og allt angandi af skötu ógeðis.Ég hef nú aldrei smakkað skötu en ég hef bara ekki lyst á því,bæði út af lyktinni og hvernig hún er verkuð, við erum að tala um að hún er sett í poka og látinn úlna einhversstaðar undir hvalbak út á sjó.En hvað um það þá á ég bara eftir að kaupa eina jólagjöf og þá er maður bara klár.Svo var aðeins kíkt á lífið í gærkveldi en var svo eins og einhver hefði slökkt á mannskapnum og allir fóru heim.Svo eru litlu jól VKB í kvöld og verður maður nú bara rólegur þetta árið, var frekar slappur á aðfanagadag í fyrra og geri það ekki aftur.En hér fylgir með myn af skötu á hafsbotni en þær ná að fela sig vel þarna niðri.

6 Comments:

At 1:38 AM, Siggi Björn said...

Skata er viðbjóður....hef samt aldrei smakkað skötu.

 
At 5:40 PM, Helgi said...

Skata bragðast betur en hún lyktar. Þarf svo sem ekki mikið til. Bragðast reyndar bara alveg ágætlega.

 
At 6:02 PM, Zindri Freyr said...

...skata er fín maður...ekki láta eins og krakki...

 
At 6:11 PM, Lára Dögg said...

Gleðileg jól og takk fyrir árið sem er að líða... ;)

 
At 9:45 PM, Hlynur herjolfs said...

ég verð nú að segja að þú lækkaðir töluvert í trillukallaáliti hjá mér.. ef þú ætlar að verða ekta verðuru að éta skötu drengur :)

 
At 3:50 PM, Birgit said...

Hey Hr H
Bindið þitt er upp á Höfðó! Og sorrý með hattinn þinn á þjóðhátíðinni 2005, mér fannst samt óþarfi að þú værir að gráta yfir því á ballinu. Ég meina þetta er bara hattur.
See jú
Birgit frænka

 

Post a Comment

<< Home