Nenni ekki að blogga.

Já það er vertíð og ég nenni ekki að blogga, en geri það núna svona ykkur til geðs. En hvað um það þá er bara búið að vera ágætis fiskirí, allt troðfullt í fyrradag en þá vorum við með um 100 kör eftir daginn sem er bara eins og í gamla daga. En hvað um það þá er ég búinn að smíða kerru fyrir hornið littla og þarf þá bara við næsta tækifæri að fara uppá land að sækja það. Og svo var fengið sér öl síðasta föstudag heima hjá Laua, og voru þar í gangi miklar samræður um kúk þar, og í því tilefni kem ég hér bara með kúk mánaðarins.
