Trillukall

Hafþór Halldórsson, athafnamaður og trillukall.

föstudagur, desember 23, 2005

Þorláksmessa

Þá er nú bara kominn þorláksmessa og allt angandi af skötu ógeðis.Ég hef nú aldrei smakkað skötu en ég hef bara ekki lyst á því,bæði út af lyktinni og hvernig hún er verkuð, við erum að tala um að hún er sett í poka og látinn úlna einhversstaðar undir hvalbak út á sjó.En hvað um það þá á ég bara eftir að kaupa eina jólagjöf og þá er maður bara klár.Svo var aðeins kíkt á lífið í gærkveldi en var svo eins og einhver hefði slökkt á mannskapnum og allir fóru heim.Svo eru litlu jól VKB í kvöld og verður maður nú bara rólegur þetta árið, var frekar slappur á aðfanagadag í fyrra og geri það ekki aftur.En hér fylgir með myn af skötu á hafsbotni en þær ná að fela sig vel þarna niðri.

miðvikudagur, desember 14, 2005

Síðasta prófið

Já ég fer í síðasta prófið á morgunn, eitthvað algjört bull sem er sjóréttur,frekar ógeðis.En ég og Viggó fórum í Europris áðan og verslaði Viggó fyrir 11000 kr. en ég fyrir 1500 sem er frekar sérkennilegt fyrir mig.Ég kem svo heim á morgunn fer svo á sjó um kveldið eða á föstudaginn,á Brynjólf sem er bara fínnt.En ég er bara búinn að fá snilldar einkunnir sem er í fyrsta skiptið að gersat hjá mér eftir margra ára skólagöngu.En ég er hættur þessu í bili, sjáumst á morgunn.

mánudagur, desember 12, 2005

Bloggleysi!

Já þið verðið nú að afsaka þetta bloggleysi hjá mér,hef ekkert haft að segja,svo loksins um daginn þegar ég ætlaði að blogga þá var eitthvað bilað í þessu apparati,bara helvítis húmbúkk. Það er nú líka ekki búið að vera mikið að gerast hjá mér sem er mjög merkilegt.En ég kem með fyrri ferð á fimmtudaginn fer líklega út á sjó.Er búin að vera í prófun og held ég hafi náð þeim sem ég er búin að fara í,en það á eftir að koma í ljós.En ég var nú smá mjúkur á föstudaginn og laugardaginn ekkert neitt svakalega.En hvað um það þá er ég búin að vera velta því fyrir mér hvernig ég kem bátnum mínum heim,var að spá í að róa honum en það þarf að þétta hann soldið sem ég nenni ekki að gera hérna í bænum.Ætli maður smíði bara ekki kerru og skelli honum í Herjólf,en svo er algjör snilld ég, Birkir og Siggi förum allir örugglega á Ísleif yfir vertíðina sem verður algjör snilld,snilldar áhöfn.En ég nenni þessu ekki lengur veriði sæl.

fimmtudagur, desember 08, 2005

Bloggleysi!

Já þið verðið nú að afsaka þetta bloggleysi hjá mér,hef ekkert haft að segja.Það er nú ekki búið að vera mikið að gerast hjá mér sem er merkilegt.En ég kem með fyrri ferð á eftir (fimmtudag) og ætla mér nú að vera rólegur um helgina fer nefnilega í síðustu prófin í næstu viku.Er búin að vera í prófun og held ég hafi náð þeim sem ég er búin að fara í,en það á eftir að koma í ljós.En ég var nú vel mjúkur á laugardaginn vorum í póker heima hjá Laua og var ég og Hansi sem vorum svo tveir eftir,en endaði svo með að Hansi tók þetta og tapaði ég þá 500 kalli,þó ekki Jóni Sigursyni.En hvað um það þá er ég búin að vera velta því fyrir mér hvernig ég kem bátnum mínum heim,var að spá í að róa honum en það þarf að þétta hann soldið sem ég nenni ekki að gera hérna í bænum.Ætli maður smíði bara ekki kerru og skelli honum í Herjólf,en ég nenni þessu ekki lengur veriði sæl.