Trillukall

Hafþór Halldórsson, athafnamaður og trillukall.

sunnudagur, janúar 29, 2006

Enn ein helgin búinn.

Já þá er enn ei helgin að klárast.Það voru bara þónokkur mjúkheit í gær,ekkert samt svakaleg.Ég Hannes og Bjössi fórum í pottinn í gær og fengum okkur auðvitað öl,svo var kíkt til Laua og sötrað þar svo var kíkt á þrastarbar svo aðeins á ógeðis lundann.En hún er nú ekki mikil þynnkan,sem betur fer enda var maður nú bara frekar rólegur,bara rétt mjúí.En hvað um það,þá er ég nú að spá í að fara að ná í hornið mitt næstu helgi,ætla bara að reyna að fá lánaða kerru.Maður verður nú að fara að koma þessu heim svo hægt verði að fara að koma þessu í gagnið.Það verður nú fínt að fara getað farið að trillast sem er bara snilld.En jæja ég nenni þessu ekki lengur veriði sæl.

þriðjudagur, janúar 24, 2006

Já bara gaman.

Ég var að fara að opna skúffuna en þá var hún læst,svo bara fór ég úr skónum og vissi ekki meir þegar ég fékk mér cherios með sykri.Svo leit ég á skjáinn og bara kveikt og slökkti en svo fór úr sambandi og prentaðist ekki.Og suðan brotnaði og ég tók myndina svo af hillunni og var með sængina en ekki mjólk frekar en heldur kortið heldur líka límmiða.En kveikjarinn var ekki kveiktur en diskurinn brotinn,en ekki glasið,svo kom bara ekki neitt.En svo kom kúkur í buxurnar,en ekki piss,en sjórinn var kaldur,og vatnið var búið.Svo opnaðist hitt líka út og fjallið virtist minna og svo grasið kláraðist.

laugardagur, janúar 21, 2006

Samkynhneigðir og kúkurinn.


Já hér er kúkurinn,og lofa ég nú því að fara að blogga meira.En nóg um það þá er búið að vera mikil umfjöllun um samkynhneigða,aðalega þá um giftingu þeirra.Ég sá að hann bróðir minn Jón Helgi var eitthvað að blogga um þetta um daginn og var þar þónokkur umræða umþetta mál.En ég hinsvegar sem hef nú bara ekkert á móti þessu fólki,er nú ekki alveg sammála því að þetta fólk megi gifta sig.Og sá ég nú eitt svarið hjá einum sem hafði svarað þessu hjá honum Jóni sagði að það ætti þá ekki að leyfa fólki sem stelur að gifta sig því það stæði í biblíunni að það mætti ekki.En þetta eru nú engin rök því ef þú stelur eða eitthvað annað sem má ekki í boðorðunum tíu þá geturðu alltaf beðið um fyrirgefningu hjá Guði,þetta eru náttúrulega enginn rök.Sjálfum finnst mér þetta alveg fáránlegt,af hverju getur það bara ekki gift sig hjá sýslumanni,afhverju þarf það að reyna að komast inn í hóp þar sem það er ekkert alveg velkomið,allavegana þá er ég ekki að sækjast eftir því að komast í einhverja hópa þar sem ég er ekki velkominn.Svo er þetta nú bara mjög einfalt púsluspil kall og kona fjölga sér og hlýtur það að hafa verið hugsuninn hjá Guði ef hann hefur nú skapað allt þetta,og stendur það nú í biblíunni,og ef Þjóðkirkjan ætlar að fara eftir þessu þá á hún ekki að leyfa þetta.Allavegana þá hef ég nú hugsað mér að segja mig úr kirkjunni ef þetta verður leyft,því mér finnst hún þá vera búinn að missa það sem hún stendur fyrir.

sunnudagur, janúar 08, 2006

Gleðilegt ár

Já gleðilegt ár og þakka liðið,er alveg að missa áhugan á þessu bloggdóti.Ætla nú samt að reyna að fara að taka mig á í þessu og fara koma með eitthvað skemmtilegt.En ég kíkti aðeins á ballið á föstudaginn og var bara fín stemning en missti reyndar af Herberti.En núna er ég bara kominn í bæinn,kom í gær með dallinum og skellti mér bara á king kong sem var bara alveg ágæt,en ég ef henni nú bara 2 af 4 stjörnum.Svo er bara að skella sér í kolaportið á eftir og auðvitað hina einu sönnu EUROPRIS.En þangað hef ég nú bara ekki komið í örugglega 2 eða 3 vikur.Já svo er bara að fara að leita sér að plássi,en það getur verið að maður fari bara á Glófaxan aftur það eru nú bara orðnar fínar tekjur þar,og skemmir það að hafa Bedda þarna uppi en hann er bara flottur.OKEI BÆ.