Trillukall

Hafþór Halldórsson, athafnamaður og trillukall.

laugardagur, janúar 20, 2007

Andvari VE-100

Já þá er kallinn bara loksins orðinn löggilltur trillukal og stórútgerðar maður. Já það er ekki bara Andvari sem ég á heldur á hlut í Öllara ve og svo á ég álbát í hafnarfirði, þannig að Samherji ætti bara að fara að passa sig. En hvað um það þá er ég byrjaður aftur að blogga og ætla að vera virkur bloggari aftur. Það verða smá breytingar á þessu hjá mér því ég ætla að vera alltaf með nýjustu aflatölu og aflaverðmæti hérna á síðunni. En ekki örvænta Mrtu bjössi minn ég ætla ekki að hætta með kúk mánaðarins.