Trillukall

Hafþór Halldórsson, athafnamaður og trillukall.

miðvikudagur, nóvember 23, 2005

Europris.


Já ég fór í gati áðan í europris eins og ég geri stundum,þetta er algjör snilldar búð.Við erum að tala um það hvort þig vanti piparkökur eða smurolíu á sláttuvélina.En ég og Murtu Bjössi fórum í bíó á myndina Waiting og var hún bara með þeim betri myndum sem ég hef séð uppá síðkastið,hún var bara mjög fyndin og fær 3,5 stjörnur af 4.En þá hef ég nú lítið meira að segja veriði sæl að sinni.

þriðjudagur, nóvember 22, 2005

Ekkert gert í samgöngum!!!

Ég var að lesa það á síðunni hjá fréttum að hann Andrés Sigmundsson hefði lagt fram að það ætti að reyna fá stærra,hraðskreyðara og nýrra skip fyrir vorið.En nei það var fellt með 6 atkvæðum á móti 1,sögðu að það væri ótímabært.Hvað er eiginlega í gangi,það er bara málið að það er sama hvað verður gert í samgöngumálum að það verður að koma nýtt skip strax.Þetta er bara ekki manni bjóðandi lengur að fara með þessu skipi.Ég er búin að vera skoða svona ferjur út um allan heim og þetta bara þekkist eiginlega ekki að vera á svona hægfara skipi í svona ferjuflutningum.Og það er bara staðreynd að þetta skip er bara orðið þreytt.Svo er annað,ég ákvað að telja sætin um borð fyrir farþegana og eru þau ca.300 og svo eru 86 kojur þannig að við erum að tala um að samtals eru þetta vel undir 400 og skipið er með leyfi fyrir 500 manns,þá erum við að tala um að rúmlega 100 manns standi alla leiðina ef skipið er fullt sem það er orðið mjög oft,þetta er náttúrulega bara til skammar.Svo þegar maður fer aðeins að spá í þessu þá finnst mér það bara ákveðinn mannréttindi að geta búið þar sem maður vill og með góðar samgöngur.Það væri allt annað ef Vestmannaeyjar væru sjálfstætt ríki en það er það ekki við erum hluti af Íslandi.

mánudagur, nóvember 21, 2005

Fer að líða að prófum.

Já það fer að líða að prófum,þau byrja í næstu vikuu hjá mér og fer ég í síðasta prófið 15.des.En ég var í eyjum um helgina fékk mér öl á laugardaginn,var fyrst heima fór síðan til Þóris og var bara fínasta stemning og auðvitað endaði það með lundanum í restina.En ég kem svo aftur á eyjuna á föstudaginn,og svo er nú mesta snilldin að ég fer ekki aftur eftir áramót,verð bara á eyjunni björtu og verð í fjarnámi.Og fer ég á sjó veit samt ekki hvar ennþá.Svo var Murtu Bjössi búinn að ákveða að fara líka heim um áramótinn.

þriðjudagur, nóvember 15, 2005

Snillingur!!

Já hann Steven Seagal er helvíti flottur,var apð horfa á mynd með honum sem heitir Out of reach og var reyndar ekkert spes.Hann er samt töffari.En aftur kem ég að Herjólfi en ég tók með mér bækling þaðan þegar ég kom á sunnudaginn,og er það alveg magnaður bæklingur.Þar stendur meðal annars að í björtu veðri er siglingin sannkölluð upplifun(hef ekki kynnst því ennþá).Svo er ein fyrirsögnin LJÚFUR OG AFSLAPPANDI FERÐAMÁTI,og fyrir neðan það stendur hvað er hægt að gera um borð t.d. ganga um,alveg gríðarlega skemmtilegt eða hitt og heldur,og ýmislegt annað fáránlegt. Þannig að ég hvet alla til að lesa þennann bækling því hann getur komið manni til að brosa.En nú fer að líða að því að myndin Exorsicm of Emely Rose fer í sýningu og veit ég ekki hvernig maður verður eftir að hafa horft á hana.Býst samt við því að það þurfi einhver að sofa hjá honum Sigga greyinu því hann er svo lítill í sér.Hann t.d. vildi einu sinni leiða mig að því hann var svo hræddur(ekki lýgi).En ég nenni þessu ekki meir veriði sæl í bili.

mánudagur, nóvember 14, 2005

Þynnka!!!

Já það er nú búin að vera meiri þynnkan í gangi,datt íða báða dagana og er maður alveg líka búin að fá að kenna á því.Já ég er ennþá þunnur,ég var bara vaknaður kl 0700 í morgunn og lítið búinn að sofa um nóttina.En ég fór þá bara að skúra í morgunn þegar ég vaknaði,það var annað hvort að skúra eða horfa á glæstar vonir.Já það er greinilegt að maður er byrjaður aðeins að eldast,maður er ekki lengur táningur.En svo er ég búinn að fá myndavélina mína aftur svo það fer að koma að þessu.

fimmtudagur, nóvember 10, 2005

Engin göng.

Já þá er kominn niðurstaða úr þessu ganga máli og er það víst óraunhæft.En þá verður líka að gera eitthvað annað,það verður að koma nýtt skipp helst í gær.Þetta skip er orðið svo úrelt og glatað að það er búið að sprengja allt utan af sér.Og fyrst að þessi niðurstaða er kominn þá verður að fara hugsa strax eitthvað annað,það er ekki hægt að bjóða fólki uppá þetta lengur,það er nátúrulega fáránlegt að á venjulegum sunnudegi fái maður ekki sæti um borð í þessum dalli í nær 3 tíma og þurfi að panta fyrir bílinn til að komast af eyjunni,maður á náttúrulega að getað komist af eyjunni þegar maðurvill allavegana með skipinu,algjörlega út í hött.En hvað um það þá var ég að koma úr bíó,af hörmulegri mynd sem heitir 2 for the money,fær -6 stjörnur af 4 mögulegum.Kem svo á eyjuna um helgina og verður þá fengið sér öl allavegana á föstudaginn veit ekki með laugardaginn maður sér bara til.

þriðjudagur, nóvember 08, 2005

Kúkurinn og önnur ógeðis herjólfsferð


Já það er komið að enn eina ferðina,kúkur vikunar.Falleg massíf frussa sem kemur skemmtilega á óvart,gæti giskað á að þetta væri þynnkukúkur,kannast aðeins við svona lagað.En ég kom með Herjólfi í gær sem var náttúrulega bara ógeðis því ég og Beggi fengum hvergi sæti,báturinn var fukkur af krökkum og endaði með því að ég og Beggi fórum niður í almenning og settumst inn á klósett.Þetta er náttúrulega ekki hægt ennþá að bjóða fólki uppá þetta,þetta er bara til háborinnar skammar.En svona er þetta allt gert fyrir Reykjavík ógeðis en ekkert fyrir landsbyggðina.Og ætli svo sé ekki bara borgað þessum ganga rannsóknarmönnum fyrir að koma með lélégar niðurstöður,þetta er bara komið nóg.

föstudagur, nóvember 04, 2005

Leti!!!

Já maður er búinn að vera soldið latur uppá síðkastið,en nóg um það þá var ég í töl prófi og gekk hörmulega því ég hélt ég mundi fá 10 en náði ekki einu sinni að klára.Og svo ekki til að toppa það þá er með allt á hreinu í sjónvarpinu núna með ógeðis stuðmönnum.Þeir halda allavegana ennþá í dag að þeir séu eitthvað en eru svo bara glataðir og hallærislegir gamlir kallar og skil ég ekki einver er ekki búín bara að fara með þetta í blöðin.Svo kem ég til eyja á eftir,alveg að vera búin að tapa mér hérna,búinn að vera allt of lengi fór ekki heim seinustu helgi.En hvað um það veriði sæl.