Trillukall

Hafþór Halldórsson, athafnamaður og trillukall.

mánudagur, október 31, 2005

Kúkur vikunar


Já góðir lesendur það er komið að því,kúkur vikunar.Að þessu sinni er það fallegur lurkur,sem myndar einskonar kringlu eins og mörg bakarí nota sem logo.En hann er ekki heldur minn,því ég finn ekki myndavélina mína ennþá.En hvað um það þá var ég nú hérna í borg óttans þessa helgina og frekar rólegur bara,fékk mér reyndar aðeins með peyjunum uppá vist á laugardaginn.Ég fer svo til eyja næstu helgi og ætla ég að reyna koma þá með hornið með,ef ég verð búinn að redda mér kerru.Svo eitt í lokinn þá skifti ég um bíl á föstudagginn,fékk toyotu carinu 1997 árg.Og er ég búinn aðeins að fylgjast með eyðslunni á honum um helgina og sýnis mér ég vera spara svona 10-14 lítra á hundraðið,sm er dágóður slatti fyrir skólapeyja.

fimmtudagur, október 27, 2005

internetið er alveg magnað!

Já það er sko alveg magnað að flakka um veraldarvefinn,t.d. var ég á google áðan og sló inn shit picture og það komu 8,9 milljón svör á aðeins 0,05 sek.En hvað um það þá getur verið að ég skifti bílnum mínum á morgunn,fyrir toyotu carinu 97´árg.Og ætlar gaurinn að vera í bandi við mig á morgunn og þá kemur þetta allt í ljós.Einnig er bíllin með kúlu þannig að þetta er svolítill trillubíll líka.

miðvikudagur, október 26, 2005

Kúkurinn


Jæja þar sem Þórir var orðinn soldið óþolinmóður með að sjá kúk,þá fann ég hérna eina kúkamynd sem er reyndar ekki eftir mig þar sem ég finn ekki myndavélinna mína ennþá.En hvað um það þá var ég bara að kúka rétt í þessu og hefði nú verið gaman að mynda hann,því hann var helvíti flottur,alveg kolsvartur og fínn ekta kodak moment.

þriðjudagur, október 25, 2005

Kominn aftur.

Já var bara að koma afur í bæinn í hádeginu með dallinum,en eitthvað mun það nú tefjast að koma með kúk vikunar því ég finn ekki myndavélinna mína held samt hún sé í hveragerði hjá mumma en þar er læst þar sem hann er í Alaska.En hvað um það þá ætla ég að fara með hornið mitt til eyja þarnæstu helgi eða reyna það allavegana.En það var nú fín stemning á laugardaginn vorum heima hjá mér fyrir ballið og fórum svo á ballið sem er soldið í móðu eins og er,var soldið svartur og endaði það svo með nokkrum ælum.

fimmtudagur, október 20, 2005

Lambasnitsel


Já ég fór í Nóatún og keypti mér Lambasnitsel í hádeginu.Það var mjö gott og fékk ég mér svo murtu á eftir ala murtmaker,en hvað um það ég kem á eyjuna björtu á morgunn sem verður snilld,því ég er einn heima en reyndar eru litlu krakkarnir líka heima þannig að það þarf eitthvað að gera við þau á laugardaginn.Ok bæ.

miðvikudagur, október 19, 2005

Kúkur vikunar

Já kúkur vikunar verður nýtt hérna á síðunni minni,en þá mun ég taka mynd þegar ég er búin að kúka og velja besta kúkinn eftir vikuna og setja hann á netið,og þá fáið þið tækifæri til að gefa honum einkunn og jafnvel nafn líka.En hvað um það það styttist í sálarballið og verða þeir nokkrir öllararnir sem verður slátrað þá.Einnig er ég að hætta að taka í vörina sem gengur ekkert voðalega vel samt betur en ég bjóst við,ætla reyna bara til að byrja með að taka bara í vörina þegar ég er í tíma, horfa á sjónvarpið,fá mér bjór og þegar ég er út á sjó.

þriðjudagur, október 18, 2005

Herjólfs ferð er leiðinleg ferð


Jæja nú er maður orðin þónokkuð leiður á þessum 2 tímum og 45 mínútum í Herjólfi,jú jú þetta er gott skip og gott að ferðast með því þegar vont er í sjóinn,en þetta er svo svakalega langdregið og leiðinlegt.Það er ekkert hægt að gera nema horfa á handónýt sjónvörp í stólum sem enganvegin er hægt að láta sér líða vel í.Það ætti að setja plasma sjónvörp á sitthvoran veggin inn í borðsalina bakborðs og stjórnborðsmegin og mundi það ekki kosta mikið að kaupa 4 plasma skjái fyrir svona stórt fyrirtæki kannski milljón.En það verður líka að fara að huga að því að fá nýtt skip þó svo að það yrði ákveðið að fá göng því ef það kæmu göng verður ekki hæagt að keyra í gegn fyrr enn í allra fyrsta lagi eftir 10 ár sem mér sýnist að verði ekkert af.

sunnudagur, október 16, 2005

Hvað er eiginlega í gangi

Já nú er það svart edrú aðra helgina í röð þetta hefur bara ekki gerst frá því ég veit ekki hvenær.En hvað um það það verður svakaleg stemning næstu helgi á sálinni en þá verður bætt upp þetta bjórtap sem er búið að eiga sér stað síðustu tvær helgar en samt var nú slátrað fjórum heima hjá hannesi í gær.En nú fer ég að fara aftur í herjólf og uppá land í borg óttans ógeðis og bara allt ok bæ.