Trillukall

Hafþór Halldórsson, athafnamaður og trillukall.

þriðjudagur, október 18, 2005

Herjólfs ferð er leiðinleg ferð


Jæja nú er maður orðin þónokkuð leiður á þessum 2 tímum og 45 mínútum í Herjólfi,jú jú þetta er gott skip og gott að ferðast með því þegar vont er í sjóinn,en þetta er svo svakalega langdregið og leiðinlegt.Það er ekkert hægt að gera nema horfa á handónýt sjónvörp í stólum sem enganvegin er hægt að láta sér líða vel í.Það ætti að setja plasma sjónvörp á sitthvoran veggin inn í borðsalina bakborðs og stjórnborðsmegin og mundi það ekki kosta mikið að kaupa 4 plasma skjái fyrir svona stórt fyrirtæki kannski milljón.En það verður líka að fara að huga að því að fá nýtt skip þó svo að það yrði ákveðið að fá göng því ef það kæmu göng verður ekki hæagt að keyra í gegn fyrr enn í allra fyrsta lagi eftir 10 ár sem mér sýnist að verði ekkert af.

12 Comments:

At 12:47 PM, Siggi Björn said...

Sammála,þetta er hundleiðinlegt helvíti.Við verðum bara að kaupa okkur flugvél,Birkir getur svo verið flugmaðurinn okkar...eða nei það er kanski ekki mjög sniðugt,ætla að hugsa þetta aðeins betur.

 
At 4:37 PM, Andri Hugo said...

Mikið er ég sammála þér. Hundleiðinlegt að hanga þarna, sérstaklega ef maður er einn. En það er alveg yndislegt að sofa í dallinum, svo maður reynir bara að taka þann kostinn sem oftast.

 
At 5:47 PM, Hannes said...

sammála....

 
At 7:21 PM, þórir said...

já og í allar kojur... halló siggi hugsaðu til mí stundum

 
At 8:45 PM, Túngötu 7- prins said...

Hættu bara að velta þér upp úr þessu Siggi og komdu bara með greiðuna mína sem þú ert búinn að míga á helvítið þitt

 
At 9:15 PM, Nonninn said...

Herjólfur er viðbjóður frá A til Ö, beikonið er fáranlega dýrt þarna. Það liggur við að það sé ódýrara að kaupa sér pakka og biðja þá um að steikja upp úr því !

 
At 12:13 AM, haffi said...

Það styttist í það að ég fari bara að ferja fólk á trillunni minni á milli

 
At 12:53 AM, Siggi Björn said...

Og hvað ætlar þú að bjóða upp á á leiðinni,sjó í augu og lungnabólgu,Já nei takk....þá mætti Birkir frekar fljúga með mig á milli.

 
At 9:07 AM, Helgi said...

Það færi enginn heilvita maður að fljúga með Birki. Svo ég skil vel að Siggi ætli að gera það.

 
At 11:48 AM, haffi said...

Ég mun bjóða uppá dvd í 7" wide screen flatskjá og frítt kaffi og kleinur með

 
At 12:19 PM, Borgþór said...

Ég mæti ef þú talar eins og Fúsi í kallkerfið...

Er ekki annars kallkerfi um borð?

 
At 5:46 PM, haffi said...

ertu þá að meina kompaní and the kruv will thank you and hope you have enjoau the trip

 

Post a Comment

<< Home